minns

en ekki þinns

fimmtudagur, júní 15, 2006

Forty love

Ég man ekki af hverju, en ég var að leita að Venus Williams á google images. (Finnst hún ekkert svo hot, btw, svo ég veit í alvörunni ekki af hverju.)

En þá fann ég ó svo fínt.

Og þá bjó ég til meira fínt.

Þetta er ég með tiled á litla skjánum,

og þetta er ég með tiled á stóra skjánum.

Held að þessi í bleika sé ekki sama gellan tvisvar, heldur tvær eins.

Ykkur kann að finnast þetta töff svona hérna, en þið verðið að sjá þetta tiled.

Fíla þetta

http://en.wikipedia.org/wiki/Double_hyphen

miðvikudagur, júní 14, 2006

Boltafífl

Fyrst þegar ég sá gaurinn þarna jögglandi við the beatles þá fannst mér það töff.

Núna er ég að hlusta á plötuna og sé gaurinn fyrir mér alltaf! Augh. Skemmir dáldið fyrir.

Always shout something obscene

Held ég þurfi plötuspilara og lampamagnara.

Abbey Road er flott, en ég er með tvær útgáfur af henni: eitt venjulegt ripp af geisladisk, og annað tekið upp af výnil af einhverjum nöttara og pakkað í eitthvað agalegt lossless FLAC jumbo.

Asnalega flott plata, það er basically enginn að gera neitt af viti í dag ? nútímatónlistarmenn eru aular :)

Ég hlusta á geislarippið og hugsa "vá hvað þetta er flott". En výnil-FLAC rippið ógurlega er svo 100x flottara! Ég hugsa "váv!", fæ hroll og fer næstum að skæla af því. Megnð.

Kannski er þetta bara bull, audiopervertaímyndunin ein. Held ég samt að ég þurfi mér einn plötuspilara og lampamagnara, því það er auðveldara að telja sér trú um að draslið sándi vel ef maður er með réttu græjurnar í það :)

mánudagur, júní 12, 2006

Fyndið uppeldið á manni, eða hvernig maður nær sér í það öllu heldur. Þ.e., ef nánar er að gáð, úr hvaða bútum sýnist manni teppið vera saumað? (Er ekki einn þarna sem lítur skuggalega mikið út fyrir að vera úr flottu buddunni sem þú hélt að þú hefðir týnt út á Benidorm? Og þessi þarna er úr laki -- og hann þyrfti eiginlega að fara í þvott.)

Ég er í rólegheitum að "hanna" dagatal núna, eitt svona á íslensku, ensku og þýsku með myndum af hinum ýmsu þjóðardjásnum Íslands. Þið vitið, þessum sem eiga að fara í kaf. Ég gef auðvitað ekki upp hvert þemað er, dagatalakeppinauturinn gæti verið að fylgjast með. Sonur eigandans að blogga frá sér forskotinu! Út í vindinn!

Jæja, sjáum hvað þýsku ferðamennirnir segja. Ég sé þá fyrir mér rífa hótelrúnnstykkin og sykurmolabréfin upp úr quadratisch-praktisch úlpuvösunum til að rýma fyrir dagatalinu.

Lúúkið sem er komið í Indesign-skjalið núna er:
* grár web 2.0 gradient
* hvítt
* og appelsínugult.

Sem sagt svona Fresh Jive. Þetta er eiginlega bara æðislega pervertalegi Fresh Jive gerviefnispólóbolurinn sem ég átti um aldamótin. Slickwick.

Ég var eiginlega með mótróa gegn sjálfum mér allan tíman sem þetta varð til, því þýskir túristar fíla ekki Fresh Jive hönnun. Það vita það bara allir.

Þetta virkar samt bara svo vel undir rjómalagaðri landslagsstemmingunni á myndunum!

Ég var búinn að segja pabba frá því hvað ég væri að gera. Hann varð dálítið órólegur, og hélt að spillti sonargarmurinn væri hlaupinn í einhverja vitleysu. Grátt og appelsínugult! Fu. Þessir listamenn.

Svo kom hann bara niður í hönnunardungeon til mín og horfði á þetta og sagði ekki neitt í smá tíma. Ég heyrði tannhjólin í hausnum á honum endurraða sér. Þegar þau voru tilbúin viðurkenndi hann að þetta væri eiginlega bara dáldið fínt.

Túristarnir fá Fresh jive ripoff í ár.