minns

en ekki þinns

fimmtudagur, október 27, 2005

Ruby er svo rétt.

Ef forritunarmál - fyrirbæri sem vekur líklegast ekki áhuga margra - getur svona hérna hluti af sér, þá er eitthvað mjög gott í gangi.

Það virðist sameiginlegt með Ruby-notendum að þetta er vel máli farið fólk, laust við rembing og finnst gaman að pæla í hlutunum. Hefur gaman af snyrtilegum hugmyndum sem virka.

Úr A Little Ruby:
The real reason for reading this book is that the ideas in it are neat. There's an intellectual heritage here, a history of people building idea upon idea. It's an academic heritage, but not in the fussy sense. It's more a joyous heritage of tinkerers, of people buttonholing their friends and saying, "You know, if I take that and think about it like this, look what I can do!"

miðvikudagur, október 26, 2005

Ég "fíll" makkann minn, þó hann sé ekki lengur af nýjustu og fínustu gerð ...

BGYORVI

mánudagur, október 24, 2005

Með hverju mælið þið?

T-402-REKU Rekstur upplýsingakerfa
T-418-UPSS Uppl.- og samskiptatækni í skólakerfinu
T-508-GAG2 Afköst gagnasafnskerfa
T-524-ISM3 Upplýstar leitaraðferðir
T-603-THYD Þýðendur
T-606-RITG BS-ritgerð
T-611-NYTI Ný tækni
T-615-SVER Sjálfstætt verkefni
T-623-MOVE Modeling and Verification (virðist mastersnemakúrs)

Athugasemdir óskast!

Svona ímynda ég mér þessa kúrsa:

'Rekstur upplýsingakerfa' er áreiðanlega hundleiðinlegt drasl, og 'Upplýsinga og samskiptatækni í skólakerfinu' sennilega líka. Skemmtana- og fróðleiksstuðull hins síðarnefnda fer vafalaust mjög eftir kennara. Ég held ekki að HR sé með neinn nægilega meððað á þessu sviði til að kenna þann kúrs þannig ég hefði gaman af.

Afköst gagnasafnskerfa virðist líka frekar þurr og ekki alveg minn tebolli.

Upplýstu leitaraðferðirnar væri sennilega sniðugt að taka, en ég vil helst eitthvað meira wild.

Þýðendur eru eflaust bráðhollir fyrir mann.

BS-ritgerð? Held ég læri aðeins meira áður en ég skelli mér á það. Meira bakland -> siglum lengra.

Ný tækni virðist mér ótrúlega pointless, þó gæjinn sem mér skilst að kenni þetta sé mjög skemmtilegur og fínn og kúrsinn alveg ágætis dægradvöl.

Sjálfstætt verkefni gæti verið gaman. Læra DSP og núðlast eitthvað í tölvugrafík inná AI-labbi ...

Modeling and verification? Luca er mjög hress, það sá ég á hádegisfyrirlestri sem hann hélt í vor. Þetta er samt mastersnemakúrs - ætti maður eitthvað að vera að pæla í þeim? Manni er varla hleypt í þá án þess að vera að borga 250þús-kallinn-á-önn sem mastersnámið kostar, eða hvað? En ef ég ætlaði að troða mér í mastersnemakúrs þá væri þetta samt varla kúrsinn, þó aðeins af því sem mér virtist áhugasvið Luca vera. Ekki alveg það sama og mitt - ég fíla fræðilegu tölvunarfræðina alveg, en hún er eins og gamalt seventísrokk: brún og upplituð-fjólublá á litinn. Ekki minn stíll.