minns

en ekki þinns

mánudagur, ágúst 30, 2004

Mont: Ég þekki Borgar og Gústa. Í gær horfðum við á video. Fyrst á mjög vonda mynd og svo mjög góða.

Það virkar vel að hreinsa vitin svona með því að draga drasl í gegn um þau - við urðum svo þakklátir þegar góða myndin kom loksins!

Frasi vondu myndarinnar:
Other people body!
Fuck it, it's not your die!

sunnudagur, ágúst 29, 2004

Ég er að eipa af ánægju með nýju heyrnartólin og magnarann.

Þar sem ég vil ekki fríka út á MSN-listanum mínum vegna þessa, það gæti virst svo sjáðu-mig, ætla ég að gera það hér.

Eip; Öll hljóðin eru svo falleg! Bara rugl! Strjúki t.d. einhver selló með rykk er eins og hvert hárið í boganum hneggji af ánægju með strenginn, sem rymur sjálfur, hvíslar og pípir af ánægju. Á sama tíma finnur maður sjálft sellóið skjótast í gegnum hausinn á sér, fyrst snigillinn efst, svo breikkandi hálsinn með spenntum strengjum og loks kantaður og furðulegur maginn á hljóðfærinu með f-unum og alles.

Komi tískulegur skreyttur snerilsmellur með lýsist allt upp í merkilega langt augnablik, flassmynd er tekin af afgagnum af hljóðunum og maður finnur svo sporið eftir hljóðið þegar það er horfið.

Þetta er ekkert grín ...