minns

en ekki þinns

fimmtudagur, október 26, 2006

Fød

Ég er búinn að spá dálítið í fötunum mínum þessa dagana. Flestar buxurnar eru götóttar. Sömu fötin viku eftir viku.

En ... ég er alveg flottasti blanki gaur sem ég þekki.

Fyrir utan Baldur, reyndar. Demit.

Ég hef samt eitt á hann: ég kann C++!

þriðjudagur, október 24, 2006

Vúps

Kínaskór eru sleipir. Kaffi er brúnt. Jakkinn minn þarf að fara í þvott. Ég þurfti að þurrka framan úr mér.

BTW:
Verð síðasta skópars / verð kínaskóa = 30

Swít díl, þrátt fyrir óhöpp.

Annars fattaði ég um daginn af hverju fall er fararheill. Ef maður dettur á leiðinni út úr húsi, þá er líklegt að maður passi sig restina af leiðinni. Fararheill indeed

Matur

Það er
Rauðsprætte fillet med remulade og surt

í matinn í HR í dag.

Ég veit ekki hvort ég ætti að taka sénsinn, og ég veit heldur ekki hvort kokkurinn var að grínast þegar hann skrifaði rauðsprætte.

Missti dáldið virðinguna fyrir þeim síðast þegar ég át í kaffiteríunni. Fólk var þar rauðþrútið og stressað og ógæfusamt, og farið að rukka fyrir smjörið. Fátt segir "hnignun" eins snjallt og fólk sem byrjar allt í einu að rukka fyrir smjörið. Symbólisminn er þrúgandi. Hnigni hnign.

Hins vegar er svampasúpa í forrétt, sem bendir til að þessi unga og hressa sem er nýbyrjuð hafi skrifað matseðilinn, og að þetta sé með vilja gert.

mánudagur, október 23, 2006

Í gær

Í gær fór ég í heimsókn til Jónasar. Toggi var þar. Við fengum köku og kaffi. Svo sat ég í sófanum hans Jónasar og kláraði þar að láta rjúka úr hausnum á mér eftir daginn. Við töluðum um tónlist, og Jónas spilaði fyrir mig skemmtilegt.

Skemmtilegt: Eldra M83, eitthvað af Datarock, eldra Khonnor. !!!, tsjigg tsjigg tsjigg, líka mjög fínt. Vildi að ég hefði dottið inn á þetta þegar það var nýtt - hefði getað verið búinn að hlusta lengur.

Svo töluðum við um stærðfræði og Penrose og heiminn og raytracera og gin og tóník.

Svo töluðum við um Llífið. Jónas er alveg klár í Llífinu, og það var mjög fínt. Seriously fínt eiginlega, tindrandi gosvatn á þornaðan pimpstein minn.

Við plönuðum!
Ég fór að hlakka til föstudagsins - að borða túnfisksteik hjá J., og ég fór líka að hlakka til næstu annar. Dugnaður í BS-verkefni, vonandi á launum, eiga sér líf og föt.

Ég hlakka til næstu annar!

Ég mun eiga peninga. Það verður hóflegt álag. Ég verð að vonandi vonandi að vinna brjálæðislega spennandi lokaverkefni - og var BEÐINN um að vinna það.

(Að hafa verið beðinn að vinna e-ð verkefni hljómar eflaust meira impressive en það er - ég er enginn leetbolti, en ég er frekar þverfaglegur og hef haft áhuga á hingaðtil-pælingum þeirra sem ég verð að vinna fyrir, svo þeir ákváðu að spyrja mig hvort ég gæti tekið að mér að skoða og vinna við ákveðna hluti. Mjög gott samt! Mjög mjög!)

Og ... ég treysti mér í þetta. Það er alveg mjög stór partur af því að ég nái að finna til einhverrar tilhlökkunar. Ég hef alltaf verið brjálæðislega klár, en hef alltaf verið jafnstúbid á meðan. Svarthvítur! Núna er ég búinn að sjá að kubbarnir sem ég er búinn að hlaða undir crappy partana af sjálfum mér eru að virka, og svei mér ég held að ég hafi meiraðsegja raðað kubbunum flott. Hah!

Það er langt síðan ég hef hlakkað til einhvers. Ég er búinn að vera að bíta á jaxlinn, þreyja þorrann, tyggja hrökkbrauðið í alveg nokkur ár núna, og men ef mér sýnist ekki vera ljósglæta þarna að ofan. Haldið áfram að moka krakkar, við erum að fara að koma upp úr hinumegin.

Síðan fór ég heim. Þar voru foreldrar mínir að hýsa, fóðra og skemmta tangókennarapari frá Argentínu, þeim Javier og Mariu. Þau voru hreint frábær, verður að segjast. Þau hafa verið að kenna tangó í sex ár, og ferðast stundum yfir hafið og kenna grábleika stofninum að mauvast á gólfinu.

Þau voru MJÖG FÍN. Við töluðum um maté og argentínska háskóla og hvernig það er að vera pró tangókennari. Maria sagði að það væri sennilega auðveldari ákvörðun að gerast tangókennari í landi eins og Argentínu, þar sem allt er í rugli og maður er ekkert vissari um að fá proper vinnu og fastar tekjur þó maður fari í ferkantað djobb. Þá er alveg eins gott að gera bara það sem maður vill, eiginlega bara betra.

Meira um þau seinna, eflaust. Og þó: Argentínumenn eru allir langleitir eða fíngerðir. (Hef núna hitt þrjá og það hefur aldrei klikkað.) Þau gáfu mér líka restina af maté-poka þegar þau fréttu að ég drykki dáldið maté, og að 100gr poki kostaði íslenska hundraðkalla.