Fucking gulir álfar
Mamma, flettandi geisladiskum
Bjartmar?! (heldur geisladisk laust milli þumals og vísifingurs)
Eigum við Bjartmar á geisladisk?
Pabbi, lesandi blað
... já ... ég keypti hann til stuðnings ...
Á Íslandi hringja unglingar með handrit og lesa fyrir mann þulu, og í staðinn kaupir maður eitthvað drasl með gíróseðli til að styrkja allskonar samtök.
Sp: Krilli, ertu með bólu á nefinu?
Sv: Já, ég keypti hana til stuðnings SÁÁ.
Þreyttir Stuðmenn á disk og upplitaður fuzz-álfur límdur í bílnum. Eða bara límklessa undan álfi, til styrktar SÁÁ.
3 Comments:
Vá, af hverju kommentaði enginn á þessa færslu? Hún er geðveikt fyndin.
Var að lesa hana aftur núna. Hún er mjög góð.
Haha. Farðu að sofa Hjalti :)
Skrifa ummæli
<< Home