minns

en ekki þinns

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Linkzör

Það eru tvær ástæður fyrir því að ég pósta ekki linka og vídjó og allskonar sem ég fíla hérna.

Önnur er sú að þá sést hvað ég hangsa mikið á netinu :D

Hin er sú að mér hefur fundist að ég ætti ekki að taka kredit fyrir einhverja linka sem ég á ekki sjálfur. Eða eitthvað þannig. Frekar pointless og weird! Eitt af mínum overcompensation atriðum. Ég man eftir því að hafa sagt eitthvað sniðugt, og sjá síðan félagslega unscruplaðri vini mína nota pælinguna án þess að gefa kredit. Nota það eins og sína eigin pælingu. Þess vegna, frekar vankað, vil ég ekki þykjast eiga linkana.

Tómt bull!

Hættur því.

Ég ætla að pósta linka framvegis, og segja af hverju mér finnst þeir skemmtilegir. Hollt fyrir mig, hollt fyrir ykkur.

Elsku Sveinbjörn, mjög kær vinur minn, einn margra vina minna sem er svo sérstaklega kokkaður upp handa mér að maður fer að trúa á einhverja alheimsstjórnun og skipulag, sendi mér þennan link áðan:

The Bohlen-Pierce scale

Ég hef alltaf haft góðan húmor fyrir því þegar einhverjir spekingar, trylltir af rökhugsun og sjálfsamanþvældri menntunar-hugsanaúrkynjun, fara að búa til nýjar tóntegundir og skala og bla. "Mikilvægasta míkrótónalverk 20. aldarinnar verður flutt af Krónos Kvartett og sjö heimspekingum." Nema hvað að Pachelbel er svo bara geðveikt flottur í Bohlen-Pierce skalanum.

Það furðulega við gamla vestræna 12-tóna kerfið er að það er innbyggður einhver hátíðleiki í því. Þrúgandi prumpulegt furstaverk sem er erfitt að losna við. Lagstúfurinn hans Pachelbels fer reyndar MJÖG vel með þennan hátíðleik, og nær að koma mér í gírinn, en það er alveg magnað hvað þetta verður spúkí en samt mannlegt í þessum furðuskala.

Margt svona tónstiga-FÍH-runk segir mér fátt. Kannski af því ég veit of lítið. En! Beyglaði Pachelbel segir mér eitthvað rosalega fínt.

3 Comments:

Blogger Ededededed said...

Ég á það til að vera unscrupluð. Niðurlút. Þú náðir mér. Dem.

5:24 e.h.  
Blogger krilli said...

Vá, fyndið, ég hefði alls ekki sett þig í þennan flokk.

Fyrir utan það að ég geri þetta sjálfur :)

9:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

krilli minn, hyperlinkurinn er atkvæði internetsins, kjóstu :)

11:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home