minns

en ekki þinns

fimmtudagur, janúar 04, 2007

gling gling

Ég sálaður á síðu lá í gömlum sófa á parketti sem einhver önnur fjölskylda hafði lagt. Þau fluttu fyrst upp á Hafnarfjarðarhól og svo eftir ársumhugsun til Ástralíu. Hann er verktaki.

Mín fjölskylda talaði um eitthvað og át konfekt. Einhver hafði fengið í jólagjöf svarta spiladós, ofna inn í handsprengju frá Trefjaplánetunni. Á hjólinu í dósinni var Krummi svaf í klettagjá.

Fokk allra ykkar vínarvalsar. Étið skít ballerínur á gormi.

Krummi svaf í klettagjá spilað á litla brothætta pinna sem minna mig actually á mína eigin putta þegar ég er orðinn of horaður. Þurrt plastbrak í stilliverkinu sem maður heyrir bara ef maður hlustar á milli hljóma. Passlega þreytt og tætt, og lagið er miklu fallegra en hafði nokkurn tímann fattað áður.

Eitthvað verður maður að hafa í myrkrinu og þetta var perfect.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá! Hvar fæst svona fíhínerí?

Hef oft pælt í hvað væri gaman að reyna að búa til sitt eigið hjól, eða svoleiðis. Breyta gömlu eða eitthvað. Svona spilverk eru svo fín, svo fallega einföld.

9:52 e.h.  
Blogger krilli said...

Tja ...

Ef maður tæki dag í að leita í litlu alvarlegu krúttíbúðunum oní bæ þá fyndist eflaust eitthvað.

2:29 e.h.  
Blogger krilli said...

(Loðnar leiðbeiningar í þína þágu!)

2:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

mmm fínt. loðið.

11:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Krilli, blwyddyn newydd da xxx

5:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hljómar vel... eins og byrjun á góðri bók... eða endir

3:47 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home